8.3.2009 | 23:11
Ég er heilalaus fáviti og landráðamaður
Ekki veit ég hvort þeir, sem til mín þekkja, myndu taka undir þessa lýsingu á mér. En þetta eru lýsingaorðin sem notuð eru á blogginu um þá, sem geta hugsað sér að kjósa Sjálfstæðisflokkinn: landráðamaður, styðji mannréttindabrot, heilalausir fávitar.
Þá segir í einni athugasemd á einum stað að Sjálfstæðisflokkurinn sé sértrúarsöfnuður spilltra veruleikafirrtra landráðamanna og að Sjálfstæðisflokkurinn skuli nú bjóða fram megi líkja við að nasistaflokkurinn með Göring í fararbroddi hefði verið í framboði til þýska ríkisþingsins eftir stríðið. Og ennfremur að það ætti að banna Sjálfstæðisflokkinn með lögum enda sé hann landráðaflokkur.
Það er ótrúlegt hvað mörgum virðist vera fyrirmunað að geta skrifað bloggfærslur með málefnalegum rökum þar sem almennrar kurteisi er gætt.
Í þessu sambandi bendi ég á góða bloggfærslu hjá Gísla Frey Valdórssyni, en hún fjallar einmitt um þennan skort á almennri kurteisi og röksemdafærslum í bloggskrifum í dag.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.