16.1.2008 | 21:54
Kærur og kosningar
Ýmislegt hefur verið sagt og skrifað um ummæli Þórunnar Guðmundsdóttur um mögulegt framboð Ástþórs Magnússonar og kæru hans í kjölfarið. Ég get ekki sagt að ég hafi orðið hissa á kæru hans og því að birta hana í dagblaði, annað eins hefur maðurinn afrekað hingað til. Á einni bloggsíðu fann ég færslu þar sem notaðar voru lýsingar eins og: hér gengur ekki heil manneskja til skógar, veruleikafirrt, hrokafullt, bara ekki heil á geði. Var viðkomandi bloggari að skrifa um Ástþór Magnússon? Ónei, þessar lýsingar notaði hann um Þórunni! Já, svona geta sumir verið öfugsnúnir í tilverunni.
Annars væri ég ekkert ósáttur við að Ástþór næði að bjóða sig fram í sumar, þá væri Ólafur Ragnar að minnsta kosti ekki sjálfkjörinn og maður hefði aftur tækifæri til að mæta á kjörstað til að skila auðu (en Nota Bene; það er leið okkar, sem erum ekki sátt við ÓRG, til að koma þeirri afstöðu okkar á framfæri).
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.