13.5.2008 | 22:49
Verð að viðurkenna að þetta kemur mér ekki á óvart
Ég verð að viðurkenna að þetta kemur mér ekki á óvart í ljósi síðustu atburða. Hitt er svo annað mál að Jakob Magnússon hefur alltaf verið duglegur að koma sjálfum sér á framfæri og pota sér áfram. En það var þó alveg óþarft af Sjálfstæðismönnum í borgarstjórn að samþykkja þennan gjörning Ólafs F. Ég er í raun hjartanlega sammála því viðhorfi, sem kom fram í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins síðustu helgi. Og við þurfum að stokka rækilega upp framboðslistann fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Ástandið er orðið slæmt þegar maður getur lítið annað sagt til varnar meirihlutanum en að ástandið væri verra ef Tjarnakvartettinn kæmist aftur til valda.
Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.