16.12.2009 | 00:00
Horfðu á björtu hliðarnar, Eiður.
Fyrir um aldarfjórðungi síðan (skelfilega er maður orðinn gamall) var Sverrir nokkur Stormsker að hefja feril sinn sem tónlistarmaður (með meiru) og að gefa út sína fyrstu plötu. Plata þessi fór nokkuð fyrir brjóstið á mörgum þar sem textar plötunnar fjölluðu mikið um hitt og þetta og þóttu margir æði vafasamir. Sjálfur sagði maðurinn ekki hneykslast á neinu nema hneykslunargjörnu fólki.
Á þeim tíma virtust margir ekki skilja Stormsker og enn virðast sumir ekki skilja hann enn í dag. Svo hneykslaður varð former ambassador af greinakorni, sem Sverrir skrifaði í síðasta Laugardagsmogga, að sá ágæti maður er nú loksins búinn að segja upp Mogganum.
Mér datt nú bara i hug eftirfarandi ljóðlínur:
Horfðu á björtu hliðarnar, heimurinn hann gæti verið verri,
horfðu á björtu hliðarnar, heimurinn á ennþá menn eins og Sverri,
sem allt lýsir upp.
Hafðu þetta í huga, former ambassador.
Og fyrir þá sem ekki eru svo skynsamir að vera áskrifendur af Mogganum, þá kemur greinin hans hérna:
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.